Dags: 28.10.2003 22:42
Að morgni miðvikudags leggur stór hópur SR-inga í keppnisferð til Svíþjóðar og Danmerkur. Þetta eru 38 leikmenn úr 3. og 4. flokki SR ásamt 15 foreldrum. Undirbúningur ferðarinnar hefur staðið í nokkra mánuði og nú er komið að stóru stundinni. Liðin munu keppa við heimamenn í Lundi, Höör, Trelleborg, Helsingjaborg og við lið í Kaupmannahöfn. Ennfremur mun hópurinn sjá leik Malmö Redhawkes - MoDo í sænsku Elite deildinni. Við reynum að koma reglulega með fréttir af ferðinni.