Fréttir

Total items: 1194

SR vann SA í 3. flokki

Dags: 09.11.2003 23:19


Strax á eftir leik meistaraflokks léku svo SR-ingar við SA í 3. flokki. Fyrirfram mátti búast við auðveldum sigri SR enda strákarnir nýkomnir úr velheppnaðri keppnisferð til Skandinavíu. En eitthvað virtist ferðin sitja í þeim því strákunum ætlaði aldrei að takast að skora. SR pressaði stíft svo til allan leikinn en náðu þó að klára dæmið, 4-2. Þetta var ágætissigur, sérstaklega þar sem við vitum að þeir geta gert enn betur.