Dags: 18.11.2003 22:54
Undirbúningur fyrir íshokkímótið Iceland Invitational sem haldið verður í Laugardalnum um helgina stendur nú sem hæst, en framkvæmd mótsins í Laugardalnum er í höndum SR. Í hádeginu í dag stóðu SR og ÍT ferðir að sameiginlegum fréttamannafundi af þessu tilefni, en ÍT ferðir í samvinnu við Icelandair og Travel and Play í BNA stóðu að kynningu mótsins í BNA og Englandi. Viðbrögð fjölmiðla voru sérlega ánægjuleg og gerðu Sjónvarpið, SÝN og Ríkisútvarpið þessu góð skil í íþróttafréttum sínum í dag og í kvöld. Ennfremur mætti Morgunblaðið í fréttaöflun. Við þökkum þessum fjölmiðlum fyrir góða kynningu á íþróttinni og mótinu um helgina.