Fréttir

Total items: 1194

Iceland Invitational lokið

Dags: 25.11.2003 17:27


Um hádegisbil í dag lauk Iceland Invitational mótinu með tveimur úrslitaleikjum. Fyrst léku Brieschke Mombers og Stars and Stripes til úrslita í Eldri flokki þar sem þeir fyrr nefndu unnu. Síðan léku til úrslita Slough Tornados frá Englandi og ReMax frá BNA. Þeir síðarnefndu báru sigur úr býtum í hröðum og skemmtilegum leik, 5-1.

Mótið tókst í alla staði ágætlega þrátt fyrir gríðarlega marga leiki og mörg lið. Ekki bar á öðru en hinir erlendu gestir hefðu verið ánægðir með mótið og skipulag þess. Það skipti sköpum fyrir framkvæmd þess hinir fjölmörgu sjálfboðaliðar úr röðum foreldra, meistaraflokks og Gulldrengja sem unnu mikið og gott starf alla mótsdagana.

Við viljum þakka þessu fólki fyrir þeirra framlag. Einnig viljum við þakka forstöðumanni Skautahallarinnar, Hilmari Björnssyni, fyrir ómetanlega aðstoð og Helga Páli fyrir alla tölvuumgjörð. Ennfremur þökkum við gott samstarf við ÍT ferðir og Hörð Hilmarsson. Að lokum viljum við þakka Peter Bolin þjálfara og Guðmundi Finnbogasyni fyrir framúrskarandi störf við undirbúning og framkvæmd mótsins.

Stjórnin