Fréttir

Total items: 1194

Léttur sigur hjá SR

Dags: 02.12.2003 23:01


Í kvöld mættust í Skautahöllinni í Laugardal SR og Björninn í Íslandsmóti karla. Fyrirfram var búist við jöfnum og spennandi leik en annað kom á daginn. Með góðu spili byrjaði SR leikinn af miklum krafti og komst í 5-1 án mikillar fyrirhafnar. Allan eldmóð virtist vanta í Bjarnarmenn á þessum kafla, lítil hreyfing á leikmönnum. Björninn náði þó að klóra í bakkann með þremur óvæntum mörkum, staðan þá 5-4, og nýttu sér þannig hálfgert kæruleysi í röðum SR-inga. Þrátt fyrir þennan litla mun var einsog sigur SR yrði aldrei í hættu. Þeir skoruðu þegar þeir þurftu á því að halda. Þeir bættu við marki og komust í 6-4 og skildu Bjarnarmenn síðan alveg eftir í þriðja leikhluta, en leikurinn endaði 11-6 fyrir SR-inga.
Það kom glögglega fram í þessum leik hversu vel SR getur spilað, og í þeim ham hafa þeir yfirburði yfir ungt lið Bjarnarins. SR sýndi þó á köflum svolítið agaleysi, einsog tíðir brottrekstrar þeirra í þessum leik gefa til kynna. Eins áttu þeir erfitt með að verjast 4 á móti 5 en Björninn skoraði 5 af sínum 6 mörkum einum fleiri. Þrátt fyrir þetta var gæðamunur á þessum liðum og Björninn mátti sín lítils í þessum leik. Hitt ber að hafa í huga að Bjarnarmenn spila ágætis íshokkí og hafa bætt sig verulega undanfarin misseri.

Leikmenn SR áttu allir góðan dag, voru áhugasamir og kappsfullir með góðan leikskilning. Ungu strákarnir í liðinu (úr 2. og 3. flokki), þeir Gauti, Úlfar, Svavar, Svanur og Kári, stóðu vel fyrir sínu, og þá sérstaklega Gauti sem átti stórleik með 4 mörk; eflist með hverjum leik. Einnig átti Guðmundur Björgvinsson áberandi sterkan leik ásamt Ingvari fyrirliða, sem sýndi vel í þessum leik hversu gríðarlega sterkur, alhliða leikmaður hann er, enda verðugur fyrirliði SR-inga - það mættu margir yngri leikmenn í íslensku íshokkí taka hann sér til fyrirmyndar.

Þá er þessari heimaleikjahryðju SR lokið í bili en næsti heimaleikur þess er ekki fyrr en um miðjan janúar er SR mætir Akureyringunum.