Fréttir

Total items: 1194

Árla morguns.....

Dags: 14.12.2003 19:14


....sást til nokkurra jólasveina sem gerðu sig líklega til að spila íshokkí í Skauthöllinni í Laugardal. Þegar betur var að gáð sást að þar voru á ferð Meistaraflokkur, 2. flokkur og nokkrir úr 3.flokki A úr SR.
Yfirjólasveinninn (Peter Bolin þjálfari) var búin að hó hó hóa saman þennan mannskap til að taka þátt í léttu innanfélagsmóti eldri flokka.
Dregið var í lið, með ákveðinni reglu þó, svo að liðin lentu vel í bland.
Strax í byrjun var óttast að eitt liðið myndi hafa gríðarlega yfirburði en það var RauðiHerinn, einsog hann var kallaður, en í því liði voru Ingvar, Elli, Gummi Choc, Svavar, Reynir, Kári og Friðbert. Þeir 3 fyrstu hafa verið þungamiðjan í landsliðsvörninni undanfarin ár og voru margir farnir að gefa upp vonina um að ná nokkru spili á móti þessum mönnum.
Peter Bolin fór fyrir sínum mönnum, HvítuSnjókörlunum, með sænskri ákveðni og skautatækni. Síðast en ekki síst verður að nefna BláuFlóðbylgjurnar en þar kom saman gamalreyndir jaxlar einsog Diddó og Helgi Páll með íshokkí-Gauta-r, Úlfar blómabóndason, Þorstein formanns-son.
Skemmst er frá því að segja að í tveimur umferðum náði RauðiHerinn ekki að skora nema 2 mörk á móti BláuFljóðbylgjunum og það í síðasta leik. Oftar en ekki náðu þeir Rauðu ekki fram yfir miðju og ef það gerðist þá var það fyrir algjöra slysni.

Langt var leitað í afsökunar-vasana til að grafa upp hinar ýmsu afsakanir einsog það væri búið að múta markmanninum og Ingvar var á gömlu skautunum sínum og fleiri og fleiri..

Úrslit urðu þau að BláuFlóðbylgjurnar tóku og sigruðu mótið, með þó ekki nema einu marki. Fengu þeir að launum sænskt eðal sælgæti. HvítuSnjókarlarnir höfnuðu í öðru sæti og þeir sigurstranglegu RauðuHermenn urðu að gera sér að góðu 3. sætið.

Allir skemmtu sér vel og fóru eftir þetta í morgunkaffi. Hver veit nema að þetta mót verði endurtekið að mánuði liðnum... hver veit..