Dags: 20.12.2003 11:20
Nú fer að líða að þátttöku okkar í Heimsmeistarakeppni U20 landsliða en Íslendingar leika í riðli sem leikinn verður í Póllandi. Mótið hefst 28. desember en um helgina eru síðustu æfingar liðsins fyrir ferðina. Liðið heldur utan á annan dag jóla og kemur síðan ekki heim fyrr en á nýju ári. Það verður eflaust við rammann reip að draga því með Íslendingum í riðli eru Hollendingar, Belgar, Spánverjar, Pólverjar og Rúmenar. Þetta verður hins vegar dýrmæt reynsla fyrir okkar leikmenn sem flestir hverjir eru í yngri kantinum.