Fréttir

Total items: 1194

Ekki sýnt frá HM í íshokkí á RÚV :(

Dags: 06.05.2009 23:15


hokkifrettamyndir2008/hm2009_1.jpg

Kaldi niðurskurðarhnífur kreppurnar kemur víða við og er RÚV þar engin undantekning.  Ákveðið hefur verið að RÚV muni ekki sýna frá úrslitaleikjum HM í íshokkí einsog undanfarin ár.  Þannig að hokkíþyrstir áhugamenn þurfa að fara annað til að horfa á úrslitakeppnina.  Einsog staðan er í dag munu það vera Rússar og Bandaríkjamenn sem spila í fyrsta undanúrslitaleiknum og svo á eftir að koma í ljós hvort að það verða Svíar, Tékkar, Kanadamenn eða Lettland sem munu keppa í hinum undanúrslitaleiknum.  Sjálfur úrslitaleikurinn verður svo á sunnudaginn kl.18:30.  Ekki er vitað á hvaða stöð þessi leikur verður sýndur en það verður auglýst hér á vefnum um leið og búið er að komast að því.