Dags: 19.04.2009 21:28
Já fyrir þá sem ekki lögðu leið sína uppí Egilshöll í dag til að fylgjast með fanta góðu íshokkíi í dag þá er vert að nefna að Vonir Íslands (úrval íslenskra unglinga á aldrinum 14 til 15 ára) herjuðu harða baráttu við unglingalið frá Kanada í kvöld. Hart var barist til síðustu mínútu og enduði leikar 4 - 2 fyrir Kanadamönnum. Það verður ekki af þessum ungu og upprennandi íslensku leikmönnum tekið að þeir kunna að berjast og spila með hjartanu. Litlu mátti muna að þeir íslensku næðu að jafna undir leikslok en allt kom fyrir ekki. Það er alveg hægt að segja að það hafi komið þeim kanadísku í opna skjöldi hvað þeir íslensku tóku vel á þeim og á kafla áttu þeir kanadísku í mestu vandræðum með þá íslensku. Framtíðin er því björt í Íslensku íshokkíi.
Þessar æfingabúðir halda áfram á morgun og þriðjudag. Það er um að gera að gera sér ferð uppí Egilshöll og horfa á fanta gott hokkí meðan það gefst.