Dags: 08.04.2009 21:07
Í dag spilaði íslenska landsliðið við lið norður-Kóreu. Íslendingar hafa mætt N-Kóreu mönnum áður og hefur þeim viðureignum yfirleit lokið með sigri N-Kóreumanna. Svo var ekki rauninn í dag þó að það hafi ekki litið neitt sérlega vel út eftir fyrstu lotuna því að þá var staðan 2 - 1 fyrir N-Kóreumenn. En þeir Björn Már Jakobsson (SA) og Andri Mikaelson (SA) skorðu sitt markið hvor áður en leikuinn var úti og tryggðu íslendingum sigurinn. Staðan hjá íslendingum er þokkalega góð eftir tvo keppnisdaga. Ísland deilir sæti með Eistlendingum sem eru með 4 stig. Serbar eru efstir með 5 stig.
Íslendingar eru greinilega að láta finna fyrir sér því að þeir eru með flestar refsimínútur á mótinu eða með 34 refsimínútur í skammakróknum. En hvað varðar aðra tölfræði þá erum við um miðbik riðilsins sem er svosem ágætt.
Á morgun eru strákarnir með hvíldar dag og á föstudag mæta þeir Eistlendingum, sem verða erfiðir, og daginn eftir mæta þeir Serbum, sem verða eflaust erfiðari. Síðasti leikur liðsins verður síðan við Ísraela á mánudag.
Áfram Ísland!!