Fréttir

Total items: 1194

MFL: Útisigur á Akureyringum!

Dags: 23.03.2009 21:10


Meistarflokkur SR vann frækinn útisigur á Skautafélagi Akureyrar í fyrsta leik úrslitakeppi Íslandsmótsins í íshokkí. SR skoraði 6 mörk gegn 5 mörkum Norðanmanna.  Leikurinn var frábær skemmtun frá upphafi til enda og nær fullt hús í Vetrarmiðstöðinni.  Einn fjölmiðillinn hafði það á orði í umfjöllun sinni að konur væru áberandi á áhorfendapöllunum og komi það til vegna dagatalsins margfræga sem sýnir SR leikmennina fáklædda á ísnum og væri það mál kvenna fyrir norðan að nú væri mun meira gaman að horfa á leikmenn SR!

SA náði forystu snemma leiks eða strax á 2. mínútu er Einar Valentine skoraði eftir stoðsendingu Björn Jakobssonar.  Stuttu síðar eða á 7. mínútu náði Gauti Þormóðsson að jafna leikinn þrumu langskoti í "sammarann" og sá Ómar markvörður SA ekki pökkinn fyrr en hann þurfti að snúa sér við til að ná í pökkinn í netið.  En SA komst áður en fyrstu lotu lauk í 2-1 með marki Jóns. B. Gíslasonar á 16. mínútu og stoðsendingar voru frá Josh Gribben og Ingvari Þór Jónssyni.

Hafi fyrsta lota verið góð var önnur ekki síðri og okkar menn byrjuðu á því að jafna leikinn og aftur var að verki "Family-Thormodsson", nema að nú var Egill þar að verki á 24. mínútu, eftir stoðsendingu Daniel Kolar.  Akureyringar sóttu grimmt og gerðist Steinar Grettisson svo grimmur hann náði að skora tvö mörk, en að vísu náuðu SR-ingar ávallt að svara fyrir sig, í fyrra skiptið Egill Þormóðsson á 31. mínútu (Daniel aftur með stoðsendingu) og síðan var það Daniel Kolar á 33. mínútu sem geystist upp svellið og jafnaði í 4-4.

SR-ingar komu grimmmir til leiks í þriðju lotu og náðu að komast yfir 5-4 á 42. mínútu, og varð það hlutverk Gauta koma pekkinum aftur framhjá Ómari í netið, eftir stoðsendingar Daniel Kolar og Guðmundar Björgvinssonar.  Um miðbik lotunar var lúalega brotið á fyrirliða SR Steinari Páli þegar hann var kominn einn inn fyrir vörn SA og frábær dómari leiksins Mike Kobetzda (vona að ég stafi nafnið hans rétt), sá sér ekkert annað fært en að dæma víti.  Það kom í hlut Daniel Kolar að taka vítið, sem því miður fyrir okkur SR-inga fór það forgörðum.  Þarna hefðu SR-ingar verið með pálmann í höndunum, en annað kom á daginn, því stuttu síðar eða 54. mínútu  kom biðdómur á SR, Ómar markmaður SA geystist útaf, og SA bætti 6. útileikmanninum inn á ísinn og vörn SR mátti ekki við margnum og Jón B. Gíslason náði að jafna leikinn í 5-5, Björn Jakobsson með stoðsendingu og allt að verða vitlaust.

En leikmenn SR sýndu svo sannarlega úr hverju þeir eru gerðir og á 57 mínútu eða þremur mínútum fyrir leikslok, náði Steinar Páll að þruma pekkinum í mark SA, af löngu færi og koma SR-ingum yfir 6-5. Stoðsendingar hér þeir Pétur Maack og Svavar Rúnarsson.  SA reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna það sem eftir lifið leiks, en yfirveguð spilamennska og frábær barátta skiluðu SR-ingum fyrsta sigrunum í úrslitakeppinni.

Þó sigur SR hafi í verið sigur liðsheildarinngar, þar sem menn börðust grimmt, létu pökkinn ganga og "spiluðu fyrir liðið", verður ekki hjá því komist að koma aðeins inn á þátt markmanns okkar SR-inga, Ævars Þórs Björnssonar.  Hann verður ekki sakaður um mörkin sem hann fékk á sig, en oftar en ekki á mjög mikilvægum augnablikum í leiknum sýndi hann stórkostlega markvörslu og hélt þannig okkar mönnum inni í leiknum.

Staðn 1-0 fyrr SR í einvíginu og næsti leikur í einvíginu er í Skautahöllinni í Laugardal á miðvikudaginn og hefst kl. 19:00.  Það er skyldumæting fyrir ALLA SR-inga og með öflugum stuðningi ykkar og baráttu og leikgleði okkar manna sem einkenndi síðasta leik, eru okkar mönnum allir vegir færir.
ÁFRAM SR!

Tölfræði
SR
Mörk:

Egill Þormóðsson 2/0
Gauti Þormóðsson 2/0
Daniel Kolar 1/3
Steinar Páll Veigarsson 1/0
Guðmundur Björgvinsson 0/1
Svavar Rúnarsson 0/1
Pétur Maack 0/1

Brottvísanir: 20 mín.

SA

Steinar Grettisson 2/0
Jón B. Gíslason 2/1
Einar Valentine 1/0
Björn Jakobsson 0/3
Josh Gribben 0/3
Ingvar Þór Jónsson 0/1

Brottvísanir: 32 mínútur