Dags: 16.03.2009 13:31

Eftir góða ferð til Tyrklands munu strákarnir okkar lenda á Íslandi í kvöld. Eitthvað hafa tyrkir undirbúið sig betur en í fyrsta leik liðanna því að leikuirnn fór "bara" 8 -2 fyrir Íslandi. Hægt er að sjá ferðasögu liðsins á vef ÍHÍ eða með því að smella hér og myndir er hægt að sjá hér. Hægt er að sjá tölfræði fyrir móitið hér og þar má meðal annars sjá upplýsingar um Egil okkar Þórmóðsson sem er lang lang lang markahæstur á mótinu með 22 mörk, næsti maður á eftir honum er með 11 mörk.
Með öðrum orðum þá mun Ísland spila í annari deild í U18 að ári og það verður gaman að sjá hvernig undirbúningurinn og árangurinn verður þá.
Áfram Ísland!