Fréttir

Total items: 1194

Landsliðsæfingar um helgina, skautaskóli fellur niður

Dags: 13.03.2009 17:52


Núna um helgina munu bæði karla og kvennalandslið Íslands vera með æfingabúðir hér í Reykjavík.  Munu þau eflaust skipta á milli sín ístíma bæði í Egilshöll og í Skautahöllinni í Laugardalnum.  Í fyrramálið fellur skautaskólinn niður en 6 og 7 flokkur mun spila í Egilshöllinni á móti fyrir þann aldurshóp.  Þeir sem vilja sjá leikglaða leikmenn sem spila með hjartanu er ráðlagt að skella sér upp í Egilshöll í fyrramálið og fylgjast með þeim fjölmörgu sem munu spila í þessu móti.