Dags: 10.03.2009 23:55
Í gær áttust við Ísland og Írland á heimsmeistaramóti karla skipað leikmönnum 18 ára og yngri. Það var ljóst að markmenn íslenska liðsins hefðu átt að taka með sér prjónadótið í þetta mót þar sem þeir hafa ekki haft mikið að gera í markinu, þar sem þeir hafa fengið á sig undir 20 skot í tveimur leikjum sem verður að teljast afar lítið.
En í leik gærdagsins var Egill Þormóðsson atkvæða mikill með 5 mörk og 3 stoðsendingar. Bjössi "litli" Sigurðsson var með 2 mörk og Tómas Tjörvi með 1 mark og eina stoðsendingu. Ævar er ennþá með 100% varið eftir tvo leiki.
Næsti leikur er við Tyrki á fimmtudaginn og verður spennandi að sjá hvernig þeir taka á þeim.
Hægt er að sjá nánar um þetta mót á tengli hér og hægt er að sjá samantekt á ihi.is hér .
HP