Dags: 05.03.2009 13:52
Skautafélagið gerði samkomulag við smáauglýsingasíðuna www.haninn.is um að hafa sérstakan íshokkíflokk þar sem fólk getur auglýst notaðan eða nýjan íshokkíbúnað á netinu. Inná þessari síðu vonum við að sem flestir auglýsi þann búnað sem þeir vilji losna við, eða skipta. Það þarf að skrá sig inná þennan vef sem er sérstaklega auðvelt og einfalt. Með þessu verður íshokkíbúnaður aðgengilegur á netinu og auðvelt verður að skoða það sem er í boði hverju sinni.
Það er um að gera að kíkja á þetta.