Fréttir

Total items: 1194

Dagatalið er komið í sölu...

Dags: 05.03.2009 01:07


hokkifrettamyndir2008/sr_dagatal_final_2_1.jpg

Dagatalið sem Meistaraflokkur SR hefur verið að vinna að síðan fyrir áramót er loksins tilbúið og komið í sölu.  Þetta er gríðarlega flott dagatal sem byrjar núna í marsmánuði 2009 og er til marsmánaðar 2010.  Meistaraflokks strákarnir, sem koma fram léttklæddir, fengu til liðs við sig hinn landsfræga ljósmyndara Kristján Maack, það vill svo skemmtilega til að hann er búin að vera í SR í allnokkur ár og þekkir hann vel til þessara manna í Meistaraflokki. Myndirnar teknar í desember á síðasta ári og janúar á þessu ári.  Listræn stjórnun var í höndum Helga Páls Þórissonar sem einnig sá um uppsetningu fyrir prent.

Þetta dagatal var prentað í takmörkuðu upplagi þannig að það er um að gera að tryggja sér eintak áður en það er búið.

Hægt er að nálgast dagtaið á skrifstofunni á skrifstofutíma eða senda póst á netfangið helgipall@skautafelag.is og panta dagatal hið snarasta.

Þetta er dagatal sem allar konur þurfa að hafa í þvottahúsinu eða á vinnustaðnum!!