Dags: 21.02.2009 14:54
Aðalfundur íshokkídeildarinnar verður haldinn laugardaginn 28. febrúar kl. 13. Við hvetjum alla foreldra til að mæta, jafnt foreldra eldri sem yngri iðkenda.
Þetta verður ekki langur og leiðinlegur aðalfundur, til þess eru SR-ingar allt of skemmtilegir. Og ekki er nú tilefnið síðra. Það er nefnilega fátt mikilvægara en að okkur takist, barnanna okkar vegna, að halda uppi blómstrandi starfi í klúbbnum okkar. Mörg okkar sem sitjum nú í stjórn höfum hug á að halda áfram (enda er hópurinn skemmtilegur!). Við þurfum þó fleiri foreldra í lið með okkur, bæði í stjórn og önnur störf í deildinni, og hvetjum áhugasama til að gefa sig fram sem fyrst. Fyrstu kemur, fyrstur fær! Munið að virk þátttaka foreldra skilar sér í meiri áhuga iðkenda!