Dags: 11.02.2009 11:11
2. flokkur SR vann góðan sigur í gærkvöldi á liði Bjarnarins 6-1. Leikurinn fór fram í Egilshöll og SR tók strax í byrjun völdin á ísnum og það liðu ekki nema einar 24 sekúndur af leiknum þegar SR var búið að skora sitt fyrsta mark, og var að verki Tómas Tjörvi Ómarsson, eftir stoðsendingu Andra Þórs Guðlaugssonar. Egill Þormóðsson jók forystuna á 15. mínútu í 2-0, eftir stoðsendingu Tómasar Tjörva. Og þannig var staðan eftir fyrsta leikhluta. SR hélt uppteknum hætti í öðrum leikhluta og pressuðu Bjarnarmenn stíft og uppskáru mark fljótlega í byrjun annars leikhluta eða á 22. mínútu, þegar Ragnar Kristjánsson náði að smella pekkinum í netið. Stoðsendinguna átti Hjörtur S. Hilmarsson. SR jók forystuna í 4-0 á 26. mínútu, þegar Kristján Gunnlaugsson skoraði gott mark, eftir stoðsendingu Björns Róberts Sigurðarsonar. Á 33. mínútu gerðust SR-ingar sekir um smá kæruleysi í varnarleik sínum og Björninn nýtti sér það og refsaði þeim með marki frá Arnari Braga Ingasyni. Það var svo í lok annars leikhluta að Björn Róbert Sigurðarson kom SR í 5-1, eftir stoðsendingu Úlfs Braga Einarssonar. Þriðji leikhluti bauð ekki alveg upp á sama hraða af SR hálfu en engu að síður tókst þeim að skora eitt mark, Jón Reyr Jóhannesson skoraði mark, þrátt fyrir að liggja á ísnum eftir mikla baráttu fyrir framan mark Bjarnarins. Stoðsendingu hér átti Óskar Grönholm. 6-1 sigur SR staðreynd og hann hefði hæglega getað orðið stærri. Leikurinn var prúðmannlega leikinn, brottvísanir SR aðeins 6 mínútur, en Bjarnmenn voru með "clean sheet" í brottvísunum og fóru ekki sekúndu í boxið. Richard þjálfari var mjög ánægður með leik sinna manna, en okkar menn voru mun ákafari í öllum sínum aðgerðum en Björninn og allir leikmenn stóðu sig með miklum sóma. SR trónir nú á toppnum í 2. flokki með 21 stig, en Björninn og SA með 9 stig hvor. Tveir leikmanna SR voru að leika sína fyrstu leiki eftir nokkura ára æfinga- og leikjahlé, þeir Jón Þröstur Hauksson og Hinrik Bjarkason hafa reimað á sig skautana að nýju og stóðu vel fyrir sínu.
Tölfræði:
SR:
Tómas Tjörvi Ómarsson 1/1
Björn Róbert Sigurðarson 1/1
Egill Þormóðsson 1/0
Ragnar Kristjánsson 1/0
Kristján Guðlaugsson 1/0
Jón Reyr Jóhannesson 1/0
Andri Þór Guðlaugsson 0/1
Hjörtur S. Hilmarsson 0/1
Úlfur Bragi Einarsson 0/1
Óskar Grönholm 0/1
Brottvísanir: 6 mín.
Björninn:
Arnar Bragi Ingason 1/0
Brottvísanir: 0 mín.