Dags: 10.02.2009 00:38
SR-ingar munu fjölmenna í Egilshöll í kvöld kl.19:00 til að taka á Bjarnarmönnum í öðrum flokki karla í íshokkí. Bjarnarmenn hafa náð að bíta vel frá sér í undanförnum leikjum, bæði í 2.flokki og í Meistaraflokki. SR-ingar tróna ennþá á toppnum í þessum flokki eða með alls 18 stig eftir 7 leiki, en Bjarnarmenn og SA sitja við sama borð með 9 stig hvort lið. SR-ingar hafa einnig vel hagstæða markatölu eða með 45 skoruð mörk (samkvæmt www.ihi.is) og er markahlutfallið hjá þeim í +20. Þess má geta að markahlutfall SA og Bjarnarins eru -7 og -13. Þannig að hér er fantagott lið á ferðinni og því ærin ástæða til að skella sér í Egilshöllina í kvöld kl.19:00 og horfa á þessi ungu lið takast á.
Áfram SR!!