Dags: 29.01.2009 12:54

SR vann Björnninn í gærkvöldi í æsispennandi leik á Íslandsmótinu, 4-3, og réðust úrslitin ekki fyrr en í framlengingu. Björninn kom mjög ákveðinn til leiks og áður en ein mínúta var liðin af leiknum hafði Björninn náð forystu í leiknum 1-0 með marki Kolbeins Sveinbjarnarsonar, eftir stoðsendingar frá Sergei Zak og Hjalta Geir Friðrikssyni.
Björninn hélt áfram að sækja stíft að marki SR-inga og uppskáru annað mark og komust í 2-0 á 8. mínútu og var þar Kolbeinn aftur á ferðinni og enn og aftur Sergei með stoðsendingu. Þá vöknuðu SR-ingar loks af værum blundi og á innan við 5 mínúta leikkafla tókst SR að jafna leikinn. Daniel Kolar náði að minnka muninn í 2-1 með góðu marki á 12. mínútu eftir stoðsendingu frá Agli Þormóðssyni. Á þrettándu mínútu náði síðan Gauti Þormóðsson að jafna leikinn í 2-2, eftir stoðsendingar frá Daniel Kolar og Óskari Grönholm. Þannig var staðan eftir fyrsta leikhluta.
Í öðrum leikhluta róaðist leikurinn aðeins, bæði lið skiptust á um að sækja en markverðir liðana sáu til þess að ekkert mark var skorað. Markmenn SR skiptu leiknum bróðurlega á milli sín Ævar Þór Björnsson lék fyrri hluta leiksins og Aron Levý Stefánsson þann seinni. Báðir áttu þeir góðan leik og héldu liði SR vel inní leiknum. Í marki Bjarnarins stóð (SR-ingurinn) Ingi Þór Ólafsson og líkt í leik liðana um daginn átti hann mjög góðan leik á móti sínum fyrri félögum.
Þá var komið að þriðja leikhluta og allt útlit fyrir spennandi leik, sem og varð á raunin. Líkt og í öðrum leikhluta var sótt á báða bóga, en þökk markmönnum og varnarmönnum beggja liða og, svo og markstöngum, létu mörkin á sér standa. En lokahlutinn var æsispennandi. Þegar rúmar 2 mínútur voru til leiksloka, átti Egill Þormóðsson eitraða sendingu fyrir mark Bjarnarins og þar var Björn Róbert Sigurðarson mættur og náði koma pekkinum í netið. Staðan orðin 3-2 og allt stefndi í sigur SR-inga. Bjarnarmenn eins og oft áður, neituðu að gefast upp og þegar aðeins um 39 sekúndur voru eftir af leiknum náði Kolbeinn Sveinbjarnarson að kóróna þrennu sína í leiknum og jafna leikinn 3-3. Stoðsendinguna hér átti Gunnar Guðmundsson. Hvorugu liði tókst svo að skapa sér færi, þann stutta tíma sem eftir lifði leiks og því þurfti að grípa til framlengingar. Reglurnar segja að leikið skuli í 1x10 mínútur og hvort lið skal leika með 4 útileikmenn á ísnum. Þá gildir einnig reglan um "gullmark", þe. það lið sem skorar fyrr í framlengingunni, vinnur leikinn og leikurinn endar.
Björninn byrjaði betur í framlengingunni og átti strax í upphafi hennar mjög gott marktækifæri, en Aron Levý náði að verja glæsilega. Það var síðan á þriðju mínútu framlengingarinnar að Gauti Þormóðsson náði að geysast upp kantinn, skauta inn að marki Bjarnarmanna og skora "gullmarkið" með lúmsku skoti niðri á markmanninn og tryggja þannig SR-ingum sigur í leiknum 4-3. Það voru glaðir SR-ingar sem yfirgáfu ísinn, en leikmenn Bjarnarins geta borið höfuðið hátt, þrátt fyrir að hafa tapað leiknum, þeir léku og börðust vel, og verðskulduðu stigið sem þeir fengu fyrir jafnteflið, en þegar sigur vinnst í framlengingu fær sigurliðið 2 stig, en það lið sem tapar, eitt stig.
Líkt og í síðustu leikjum var sigur SR-inga, sigur liðsheildarinnar, en Richard þjálfari mætti til leiks með alls 4 línur. Þá virðist sem að liðinu vaxi ásmegin eftir því sem líður á leikina og liðið sýndi mikinn styrk með því að vinna leikinn í framlengingunni, því það er jú oft sálfræðilega erfitt fyrir lið að koma rétt stemmt í framlengingu, eftir að hafa misst nánast unnin leik niður í jafntefli á síðustu sekúndum leiksins. Enn þar sannast hið fornkveðna að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómarinn er búinn að flauta hann af. Fyrir einn leikmanna SR var þetta tímamóta leikur, Jón Reyr Jóhannesson, sem er á fyrra ári í 3. flokki og á sínu 15. aldursári, lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki og óskum við honum til hamingju með það. Jón Reyr stóð vel fyrir sínu, mjög efnilegur leikmaður, með óþrjótandi baráttuþrek.
Tölfærðin:
SR:
Mörk:
Gauti Þormóðsson 2/1
Daniel Kolar 1/1
Björn Róbert Sigurðarson 1/0
Egill Þormóðsson 0/2
Óskar Grönholm 0/1
Helgi Páll Þórisson 0/1
Brottvísanir: 22 mínútur
Björninn:
Mörk:
Kolbeinn Sveinbjarnarson 3/0
Sergei Zak 0/2
Hjalti Geir Friðriksson 0/1
Gunnar Guðmundsson 0/1
Brottvísanir: 6 mínútur
Mynd: Árni Sæberg/MBL