Dags: 28.01.2009 00:27

Í
kvöld mun Björninn heimsækja SR-inga í Laugardalinn. Bjarnarmenn eru
eflaust ennþá að sleikja sárinn eftir tvö töp á móti SA um nýliðna
helgi og mæta eflaust einsog grenjandi ljón til leiks því að núna fer
baráttan að hefjast fyrir alvöru hjá þeim ef þeir ætla ekki að missa af
lestinni inn í úrslit, eða allavega gera góða atlögu að því.
SR-ingar
hafa gott tækifæri á að sækja heimaleikjaréttinn í úrslitum ef þeir
vinna komandi leiki. Leikurinn í kvöld, miðvikudagskvöld, og á
laugardagskvöldið og síðan aftur næsta miðvikudagskvöld eru mikilvægir
leikir fyrir SR í þeim áætlunum um að sækja heimaleikjaréttinn til
Reykjavíkur.
Leikurinn hefst kl.19:00 í Skautahöllinni í Laugardal og er um að gera að mæta snemma og fylgjast með liðunum hita upp og gera sig klára fyrir leikinn.