Fréttir

Total items: 1194

2FL: SR tekur á móti Birninum í Laugardalnum

Dags: 19.01.2009 22:57


Annað kvöld, þriðjudagskvöld, kl.21:00 munu SR-ingar taka á móti Bjarnarmönnum í 2.flokki karla í íshokkí.  SR-ingar hafa verið nánast ósigrandi í þessum aldursflokki, efstir með 15 stig, fyrir utan einn leik sem þeir töpuðu fyrir Brininum ekki alls fyrir löngu.  SR-ingar eru hinsvegar ekki á því að láta það gerast aftur og eru nú búnir að æfa sem aldrei fyrr.  Einn leikmaður bætist líklega við leikmannahópinn annaðkvöld og er það Þorsteinn Björnsson sem hefur verið inni og úti í allan vetur vegna ýmissa verkefna hér og þar um bæjinn.  Allar líkur eru á að Bjarnarmenn mæti með sitt allra sterkasta lið í Dalinn og það þarf ekki að fara í neinar grafgötur með það að SR-ingar geta slíkt hið sama.

Áfram SR!!