Fréttir

Total items: 1194

3FL: Frábær barátta SR-inga skilaði stigi gegn toppliði Bjarnarins

Dags: 15.01.2009 09:53


Í gærkvöldi áttust við í Skauthöllinni í Laugardal á Íslandsmótinu í 3. flokki SR og Björninn.  Björninn hefur í vetur verið í sérflokki í 3. flokki og tapað aðeins einum lék gegn SR.  Eitthvað voru okkar menn annars hugar fyrri hluta fyrsta leikhluta, því að Björninn komst snemma leiks í 1-0 með sínu fyrsta skoti í leiknum.  Fljótlega fylgdu tvö önnur og staðan orðin 3-0 og útlitið ekki gott fyrir okkar menn og stefndi allt í að Björninn myndi hreinlega valta yfir okkar menn.  Gauti og Tómas Tjörvi sem stýrðu liðinu í fjarveru Richards þjálfar hafa greinilega lesið vel yfir liðinu eftir fyrsta leikhluta, því það var gjörbreytt SR lið sem kom aftur á ísinn.  Fljótlega í 2. leikhluta tóks Birni Róberti á minnka muninn í 3-1.  Gífurleg barátta og leikgleði einkenndi alla leikmenn SR-liðsins og hélt sú barátta áfram í 3. leikhluta þar sem okkar mönnum tókst með miklu harðfylgi að jafna leikinn með tveimur mörkum frá Birni Róberti og Jóni Reyr.  Síðustu mínútur leiksins voru æsispennandi og voru okkar menn hársbreidd frá því að tryggja sér sigur.  En leikurinn endaði 3-3 og frábær viðsnúningur hjá SR-ingum í þessum leik.  Í 3.flokki er ekki gripið til framlengingar ef jafntefli verður, heldur er farið beint í vítakeppni. 
 
Þar var spennan ekki síðri en í leiknum sjálfum og fjölmargir áhorfendur hvöttu sína menn óspart áfram.  Daníel markvörður SR stóð sig mjög vel og varði 3 víti, en það dugði ekki til sigurs, því Birninum tókst að skora tvö mörk úr fimm tilraunum á meðan okkar mönnum tókst aðeins að skora einu sinnu úr sínum fimm tilraunum og var þar Björn Róbert að verki.  SR fær eitt stig út úr þessum leik en Björninn tvö. 
 
3. flokkur sýndi það í gær að ef baráttan og leikgleðin er til staðar og smá skammtur af skynsemi í leik þeirra þá eru þeir til alls líklegir og leikurinn í gær, ef undanskildar eru fyrstu 15 mínútur leiksins, mjög jákvætt framhald af sigrinum á SA um daginn.  Þó að liðsheildin hafi staðið upp úr hjá SR-ingum í gærkvöldi, þá fóru Björn Róbert og Jón Reyr mikinn að venju, Daníel markvörður átti frábæran leik og Arild með eflaust sinn besta leik í langan tíma.  Þá er ekki hægt að horfa framhjá framlagi frá eins leikmanns SR.  Bjarki Reyr, sem leikur enn í 4.flokki,  lék mjög vel í gær og gaman að sjá hversu duglegur og skynsamur hann er í leik sínum.  Hvort sem var í vörn eða sókn, stóðst hann, eldri og stærri leikmönnum svo sannarlega snúninginn.  Gríðarlega efnilegur leikmaður hér á ferðinni.
 
 
Tölfræðin
 
Leikhlutar SR - Björninn  0-3    1-0    2-0
 
Mörk SR/Stoð
Björn Róbert Sigurðarson  2/1
Jón Reyr Jóhannesson    1/0
Kári Guðlaugsson 0/1