Fréttir

Total items: 1194

MFL: Voru undir en komu sterkir til baka

Dags: 13.01.2009 23:55


SR-ingar fóru fylktu liði upp til Egilshallar í kvöld og öttu þar kappi við Bjarnarmenn.  Það var ljóst á fyrstu mínútum leiksins að Bjarnarmenn voru á því að halda uppteknum hætti gegn SR og ætluðu sér að vinna leikinn stórt, og það hellst í fyrstu lotu.  Segja má að sóknar harka þeirra hafi komið SR-ingum pínu úr jafnvægi því að eitthvað gekk illa að koma pekkin í mark Bjarnarmanna á meðan þeir áttu auðvelt með að komast inn í varnarsvæði SR-inga og leika þar næstum við hvern sinn fingur.  Það var Kolbein Sveinbjarnarson sem opnaði markareikninginn fyrir Bjarnarmenn og náðu þeir að komast í 2 - 0 áður en lotan var úti.
Í annari lotu var aðein meira jafnræði með liðunum.  Andri Guðlaugsson náði hinsvegar að skora hjá Bjarnarmönnum með ótrúlegum hætti fyrir aftan marklínu í varnarsvæði Bjarnarins.  Við þetta kætust SR-ingar mikið.  Bjarnarmenn brugðust við með því að sækja án afláts og hamagangi og uppskráru eitt mark til viðbótar og staðan orðin 3-1, Bjarnarmönnum í vil.  Það var síðan stuttu síðar minkuðu SR-ingar muninn í 3-2 og Bjarnarmenn tóku til við það að ókyrrast.  Í þriðju og síðustu lotunni settu SR-ingar á fullt gas og slógu aldrei af það sem eftirlifið leiks og á tímabili virtust Bjarnarmenn ráðþrota gegn leiknum og sókndjörfum SR-ingum.  Daniel Kolar átti gott mark eftir gott samspil í varnarsvæði Bjarnarins, Ragnar Kristinsson opnaði einnig markareikning sinn efitr skógarferð hjá markmanni bjarnarins.  Egill Þormóðsson insiglaði síðan sigur SR-inga undir enda 3 lotu með glæsilegu marki beint í samskeytin.
Leikurinn endaði 3 -5 SR-ingum í vil og heimaleikjaréttur í úrslitum innan seilingar.

Annað kvöld,miðvikudagskvöld, mun 3.flokkur SR og Bjarnarins eigast við í Skautahöllinni í Laugardagl kl.21:00.