Fréttir

Total items: 1194

2FL: SR tekur á móti Birninum í kvöld kl.20:45

Dags: 06.01.2009 12:44


2.flokkur Skautafélags Reykjavíkur tekur á móti Bjarnarmönnum í Skautahöllinni í Laugardal kl.20:45.  Leikir þessara liða hafa verið nokkuð skemmtilegir í vetur og er því um að gera að skella sér niður í Skautahöll og berja þessa drengi augum.  Samkvæmt tölum frá ÍHÍ eru okkar strákar ósigraðir í vetur og eru með fullt hús stiga.  Bjarnarmenn hafa ennþá ekki unnið leik og eiga þeir því harm að hefna.  Leikurin byrjar sem fyrr segir kl.20:45.