Fréttir

Total items: 1194

Jólaball næsta laugardag!!

Dags: 15.12.2008 23:24


hokkifrettamyndir2008/jolaball2008.jpg

Jólaball íshokkídeildarinnar verður haldið í Skautahöllinni laugardaginn 20. desember og hefst kl.11:15.  Það er aldrei að vita nema jólasveinninn mæti á svæðið og svo hann hafi nú eitthvað að gera eiga allir að mæta með litla jólagjöf (hámark kr. 500). Dansað verður í kringum jólatréið og fleira skemmtilegt verður gert. Nú mæta allir með jólaskapið og skautana til að skella sér á ísinn og renna sér aðeins, jafnvel þó getan sé ekki mikil :) Mætið með sem flesta með ykkur til að upplifa jólastemninguna í Skautahöllinni. Boðið verður upp á heitar vöfflur með rjóma og kakó.

Síðustu æfingar fyrir jól verða 18.desember og hefjast aftur þann  5. janúar.


Allir að mæta
Stjórninn