Fréttir

Total items: 1194

Tap með unninn leik í höndunum

Dags: 04.12.2008 09:04


hokkifrettamyndir2008/484859.jpg

Það verður seint sagt að leikur gærkvöldins hafi verið óspennandi og tíðindalítill.  SR-ingar voru betri aðillinn í leiknum og voru með nánast unnin leik í höndunum þegar Bjarnarmenn fór að bíta frá sér af fullri hörku.  Það virtst koma SR-ingum í opna skjöldu hvað Bjarnarmenn voru í raun hungraðir á lokamínutum leiksins, því einsog sagt er frá í Morgunblaðinu og á mbl.is þá náðu Bjarnarmenn að kreista fram sigur á lokamínútunum.
SR-ingar virtust vera heiglum horfnir undir lokinn þegar elstu og reyndustu leikmenn liðsins fóru að láta týna sig í refsiboxið einn af öðrum og spiluðu SR-ingar 3 á 5 á tímabili.
En það sýndi það líka að þeir leikmenn sem stóðu sig hvað best í liði SR voru þeir yngstu.  Björn Róbert Sigurðsson skoraði t.a.m fyrsta mark SR með stoð frá Kristjáni Gunnlaugssyni. Þeir eru tveir yngstu leikmenn Meistaraflokksins.  Guðmundur Björgvinsson skoraði gott mark með slabbara frá bláu línunni.  Kristján Gunnlaugsson skoraði síðan þriðja mark SR eftir að hafa setið af sér refsimínútur og náði glæsilegu gegnumbroti og skoraði glæsilegt mark framhjá Denis Hedström, sem var að spila sinn síðasta leik fyrir Björninn.  Steinar Páll Veigarsson skoraði fjórða mark SR með aðstoð Gauta Þormóðssonar.

SR-ingar áttu góðan leik framanaf en misstu tökinn þegar langt var liðið inní 3 lotu.  Þrátt fyrir naflaskoðun, fundarhöld og ráðagerðir virðist það ekki hafa dugað í gærkvöld gegn ágætlega spilandi liði Bjarnarins.

Meistaraflokkurinn er komin í ágætis jólafrí en næsti leikur hjá þeim er 9 og 10.janúar 2009 gegn SA í Skautahöllina í Laugardal.