Fréttir

Total items: 1194

MFL: Björninn gegn SR : 11 - 5 í gærkvöld

Dags: 25.11.2008 23:06


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/77.jpg

Í gærkvöld áttust við Björninn og SR í Meistaraflokki. SR-ingar virtist vera frískari aðilinn í leiknum, svona í upphafi, og áttu mörg ágætist færi en það voru Bjarnarmenn sem skoruðu fyrsta markið í leiknum.  Arnþór Bjarnason jafnaði leikinn fyrir SR-inga stuttu síðar.  SR-liðið virtist greinilega verið komið á staðinn til að spila íshokkí. 

Andrúmsloftið í liðinnu var létt og skemmtilegt og menn nokkuð vissir um það að núna yrði Björninn veginn.  Í lok fyrstu lotu voru SR-ingar með yfirhöndina 2 - 3 og SR-ingar sáu fram á nokkuð léttann hokkíleik, enda höfðu Bjarnarmenn ekki sýnt neinar klær... ennþá.  Í upphaf annarar lotu juku SR-ingar enn á forskotið og staðn orðin því 2 - 4 og sigurvissa SR-inga jókst enn frekar. 

En þá upphóft ævintýralegur kafli í leik Bjarnarmanna þar sem baráttan og frumkvæði var í fyrirrúmi og SR-ingar létu þá komast upp með það að skora á sig 5 mörk á aðeins 10 mínútum.  Staðan þegar liðinn fóru til búningsklefa var orðin 7 - 4 heimamönnum í vil.  Núna dugðu engin vettlingatök og menn urðu að koma sér af stað og vinna sína vinnu á ísnum.  Richard ákvað að fara niður í tvær línur og valdi til þess þá tindáta sem hann taldi líklegasta til að klára verkefnið.  En allt kom fyrir ekki. SR-ingar voru staðir og átakslitlir og Bjarnarmenn nýttu sér það til fullnustu og skoruðu alls 4 mörk í lotunni gegn einu SR-inga og unnu þar með leikinn 11 - 5.

Menn hljóta að spyrja sig hvernig sama liðið sem sigraði norðurveldið SA á laugardegi, 4 - 9, geti tapað jafn stórt fyrir liði sem þeir hafa verið að vinna nokkuð sannfærandi í vetur.  Kannski er því um að kenna að SR-ingar hafa verið að spila 3 leiki á 6 dögum? Kannski var það agaleysi leikmanna?  Því verður ekki svarað hér en eitt er alveg ljóst að SR-ingar þurfa að fara í mikla nafnaskoðun og laga þau mál sem virðast vera að plaga liðið.

Næsti leikur SR-inga verður við Björninn 3.desember í Skautahöllinni í Laugardal.  Það er einsgott að allir SR-ingar mæti í höllina þá, meistaraflokkurinn þar meðtalinn.