Fréttir

Total items: 1194

MFL: Björninn gegn SR í kvöld k.19:30 í Egilshöll !

Dags: 25.11.2008 09:23


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/15.jpg

Í kvöld kl.19:30 munu SR-ingar sækja Bjarnarmenn heim í Egilshöll.  SR-ingar gerðu ágæta ferð til Akureyrar um nýliðna helgi þar sem meistaraflokkur SR tapaði fyrri leiknum 6 - 3 en vann síðan seinni leikinn sannfærandi 5 - 9.  Þriðji flokkur spilaði einnig norðan heiða en þeim leik lauk með sigri norðanmanna 6 - 3.
Bjarnarmenn hafa verið harðir í horn að taka í vetur og til að mynda tapaði SR fyrir þeim nýverið.  Einhver liðsauki hefur þeim borist einsog t.d Úlfar Andrésson, sem er SR-ingum góðu kunnur, Róbert Freyr Pálsson sem var við nám erlendis en kom heim þegar kalda krumla kreppunar greip um veskið og síðan er ekki loku fyrir það skotið að Byrnjar Þórðarson boði endurkomu sína á svellið eftir 2 ára fjarveru.
SR-ingar eru hinsvegar með sjálfstraustið í botni eftir gríðarlega sannfærandi sigur á Akureyringum þar sem öll leikkerfi gengu upp, sóknir voru beittar og árangursríkar.

Leikurinn byrjar kl.19:30 í Egilshöll og eru allir hvattir til að mæta á svæðið og hvertja sitt lit! Áfram SR !!