Fréttir

Total items: 1194

Tap og sigur á Akureyri

Dags: 24.11.2008 09:13


hokkifrettamyndir2008/img_8928.jpg

Núna um nýliðna helgi spiluðu SR-ingar við SA norður á Akureyri.  Fyrri leikur liðanna var kl.22 á föstudagskvöld og voru leikmenn SR nokkuð borubrattir þegar inní leikinn var komið, enda þessi leiktími í takt við þá æfingatíma sem Meistaraflokkurinn hefur haft undanfarið.  En eitthvað hefur rútuferðin setið í löppunum á mönnum því að SA-menn fengu að leika við hvern sinn fingur og náðu, að því virtist, án fyrirhafnar skora í mark SR-inga.  Það var ekki fyrr en um miðbik fyrstu lotu þegar SR-ingar vöknuðu og fóru að spila hokkí að nýju.  Sá leikur endaði 6 - 3 SA í vil og athygli vekur að leikmaðurinn Arnþór Bjarnason skorði öll mörk SR með aðstoð frá Daneil Kolar.  Það er greinilegt að sú hvíld sem hann tók sér nýverið suður í Hafnarfirði hafi skilað honum góðum árangri.  Nær öll mörk SA komu þegar SR-ingar voru manni undir. 
Í seinni leiknum var annað uppá teningnum hjá SR og einnig hjá SA.  Mikið jafnræði virtist vera með liðunum í fyrstu lotu en svo virtist sem eitthvað hafi misfarist í leik SA-manna þar sem þeir misstu einn af markahrókum sínum, Stefán Hrafnsson, útaf fyrir að skalla (fyrir þá sem ekki vita þá fylgir Leikdómur (5 + 20) og einn leikur í bann fyrir slíkt athæfi) og nokkru síðar misstu þeir Josh Gribben, sem er búin að fara mikinn í leik SA í vetur, útaf eftir að hann lét dómarann "heyra´ða" og uppskar Brottvísun út leik.  Fleiri dómar litu einnig dagsins ljós t.a.m fengu þeir Hjörtur Hilmarsson og Sindri Björnsson (sem er jú uppalinn í SR) einnig Brottvísun úr leik fyrir handalögmál í 3.lotunni.  Þeir sem eftir stóðu spiluðu fínasta hokkí en það voru SR-ingar sem stóðu uppi sem sigurvegarar og enduðu leikar 5 - 9 fyrir SR.

Mörk/stoðsendingar SR í seinni leiknum:

Svavar Steinsen 3/1
Egill Þormóðsson 2/2
Gauti Þormóðsson 1/2
Þorsteinn Björnsson 1/2
Arnþór Bjarnason 1/0
Andri Þór Guðlaugsson 1/0

Brottvikningar SR: 67 mín.

3.flokkur spilaði einnig á laugardagskvöldinu og var sá leikur nokkuð jafn framanaf en okkar strákar misstu síðan SA framúrsér og var þá róðurinn erfiður fyrir okkar menn allt til enda leiks.  Sá leikur endaði 3 - 6 SA í vil.

Björn Róbert Sigurðarson 2/1
Arild Sigfússon 1/0

Myndin er fengin að "láni" af sasport.is  - þeir sem vilja skoða myndir úr leiknum geta séð þær hér