Fréttir

Total items: 1194

MFL: Sigur í seinni leik

Dags: 22.11.2008 23:53


Í kvöld voru SR-ingar að spila sinn leik.  Varnarleikur SA manna, sem hefur verið rómaður á vef SA manna, mátti sín lítils gegn sókndjarfu liði SR.  Strax frá upphafi leiksins voru SR-ingar á því að láta ekki leik gærkvöldsins draga dilk á eftir sér.  SR-ingar réðu lögum og lofum nær allan leikinn, þrátt fyrir slappan leikhluta um miðbik.  Á endanum sigraði SR 5 - 9 eftir mikla og góða baráttu.

Næsti leikur hjá MFL verður í Egilshöll næsta þriðjudag