Fréttir

Total items: 1194

3FL: Tap í gærkvöld fyrir Birninum

Dags: 19.11.2008 12:52


Í gærkvöldi mættur SR og Björninn í 3.flokki karla.  Ánægjulegt var að sjá hve margir voru komnir til að horfa á þessa ungu íþróttamenn leika í gærkvöld en það var nærri því hálf stúka sem hvatti sína menn til dáða.  Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur þar sem Bjarnarmenn fóru mikinn í fyrstu lotu leiksins og skoruðu 3 mörk án þess að SR-ingar næðu að svara fyrir sig.  Í annari lotu var nokkuð jafnræði með liðunum án þess að nokkuð var skorað.  Í þriðju lotu virtust SR-ingar vakna, eylítið of seint og náðu að minnka muninn með því að skora 3 mörk, tvö frá Jóni Rey og eitt frá Sindra Gíslasyni.  Minnstu mátti muna að SR-ingar næðu að jafna leikinn því að fjölmörg færi áttu þeir undir lokinn.
Bjarnarmenn höfðu miklar gætur á Birni Róbert Sigurðssyni þar sem hann fór mikinn bæði í sóknar og varnarleik SR-inga en náði þó ekki að skora þrátt fyrir nokkrar góðar tilraunir.

Til gamans má geta að þessi lið kepptu nýverið og enduðu leikar þá með sigri SR-inga 12-11.