Dags: 15.11.2008 16:09

Í dag, laugardag, er annar dagur 5 og 4.flokksmótsins. Margir leikir hafa verið spilaðir og gleðin skín úr hverju andliti. Eitthvað hefur verið ábótavant varðandi það að láta iðkendur í 6. og 7.flokki og Skautaskóla vita að þetta mót mundi taka af þeim æfingatímann í dag og er beðist velvirðingar á því. Leikir í 5. og 4.flokksmótinu halda áfram í dag kl.17:00 og verða einnig í fyrramálið og hefjst leikar kl.07:30 og standa til kl.13:00 en þá verður lokahátíð í Skautahöllinni í Laugardal. Það er um að gera ef menn eiga leið hjá að skella sér í Skautahöllina og fylgjast með þessum ungu og upprennandi leikmönnum spila skemmtilegt íshokkí.