Fréttir

Total items: 1194

Brynjumót næstu helgi !

Dags: 06.11.2008 11:47


það er komið að árlegu Brynjumóti á Akureyri.  Þetta mót er búið að vera frá því elstu menn í íshokkí voru ungir og muna en þá góðu tíma.  Þetta er einn af hápunktunum á tímabilinu hjá þeim yngstu og verður án efa margt um manninn á Akureyri þessa helgi og handtökin mörg.  Einnig á þessari helgi mun U18 landslið Íslands vera með æfingabúðir undir stjórn Sergei Zak.  Þeir sem hafa verið valdir þann æfingahóp þurfa að verða sér útum frí frá skóla á föstudag þegar farið verður.  Á þessari sömu helgi verður einnig æfingabúðir hjá Karlalandsliðinu í Reykjavík undir stjórn Richard Tahtinens.