Dags: 04.11.2008 09:39

Í kvöld kl.19:00 munu 2.flokkur SR heimsækja Bjarnarmenn í Egilshöll. Samkvæmt þeirri tölfræði sem er á vef Íshokkísambandsins, www.ihi.is , þá eru þessi leið ekki búin að mætast í vetur en SR-ingar hafa spilað 2 leiki við SA. Þeir leikir unnust báðir og er það vel. Björninn hefur hinsvegar ekki riðið feitum hesti í þessar deild og hefur tapað tvisvar fyrir SA-mönnum. Það verður því spennandi að sjá hvort að Bjarnarmenn nái að blanda sér í baráttuna um Íslandsmeistaratitillinn í 2.flokki með sigri í kvöld eða hvort að SR-ingar taki á málunum og sækja fyrsta sætið í deildinni, taplausir.