Fréttir

Total items: 1194

Tap í seinni leiknum 6 - 8 - Uppfært !

Dags: 25.10.2008 23:12


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/43.jpg

Þeir sem lögðu leið sína niður í Skautahöllina í Laugardal á laugardagskvöldið urðu ekki fyrir vonbrigðum.  Þar var leikinn seinni leikur liðanna SR og SA í tveggja leikja rimmu þessa helgina.  Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann og réðust úrslit ekki fyrr en á lokamínútum.  SR-ingar voru fyrr til að skora og var þar að verki Helgi Páll Þórisson, spilandi aldursforseti liðsins, eftir aðstoð frá Tómasi Tjörvar Ómarssyni.  Akureyringar náðu að svara fljótt á eftir. Gauti Þormóðsson náði að skora fyrsta mark eftir heimkomu þegar örlítið var liðið á lotuna.  Akureyringar náðu síðan að jafna leikinn áður en lotan var búinn.  Í annari lotu mættu bæði lið inná ísinn með stálinn stinn og gáfu ekkert eftir. SR náði að skora heldur meira en SA eða 3 mörk, 2 mörk frá Daniel Kolar og eitt hjá Steinari Páli Veigarssyni.  SA náði að minka muninn örlítið áður en lotan var úti.  Í þriðju og síðustu lotunni héldu liðinn uppteknum hætti og börðust um hvern pökk og hvert laust færi.  Akureyringar náðu að jafna leikinn strax í byrjun lotunnar sem opnaði leikinn enn á ný.  Egill Þormóðsson náði svo forsystunni aftur fyrir SR með góðu skoti beint í vinkilinn.  Akureyringa náðu hinsvega að nýta færin sín vel í þessari lotu og náðu að skora alls 3 mörk gegn einu SR-inga og þar með leikinn.

Leikurinn var skemmtilegur og spennandi allann tímann og er það til marks um getur þessara liða til að spila gott hokkí. 

3.flokkar þessara liða áttust við beint á eftir meistraflokksleiknum og endaði sá leikur 2 - 8 SA í vil.

Myndina tók Ómar Þór Edvardsson í leik Bjarnarins og SR nýverið.