Fréttir

Total items: 1194

MFL: Tap í fyrsta leik helgarinnar !

Dags: 25.10.2008 00:26


gallery/bjorninn_vs_sr_21102008/Images/2.jpg

Í gærkvöld áttust við SR og SA í Meistaraflokki. Í upphafi leiksins var ljóst að bæði lið voru mætt til að takast á og það yrði ekkert gefið eftir.  Akureyringar lögðu af stað útí óvissuna, með óhagstæða veðurspá í kortunum, en komust samt á leiðarenda í tíma fyrir leikinn.
Akureyrinar voru fyrr til að skora í leiknum en SR-inga náðu að jafna stuttu síðar með marki hjá Hirti Hilmarssyni.  Akureyringar juku á forskotið aftur stuttu síðar og SR-ingar náðu að jafna leikinn með marki frá Svavari Rúnarssyni áður en fyrsta lotan var búinn.
Í annari lotu var allt annað uppá teningnum hjá SR. Lítið var um sóknartilburði og varnarleikurinn oft á tíðum götóttur og ómarkviss.
Akureyringar gengu á lagið og náðu að skora alls 4 mörk án þess að SR-ingar næðu að svara fyrir sig.  Í þriðju og síðustu lotu var annað að sjá til SR-inga þar sem Richard Tahtinen hefur eflaust gefið sínum mönnum gott tiltal á milli lotanna.
SA-menn náðu enga að síður að skora eitt mark til viðbótar áður en leikurinn var úti.  Endaniðurstaðan var 2 - 7 SA í vil.

Á morgun mætast þessi lið aftur í Skautahöllinni í Laugardal og hefst sá leikur kl.18:30.  Strax eftir þann leik mun 3.flokkar sömu liða eigast við.  Þannig að það er ærin ástæða til að skella sér í Skautahöllina í Laugardal og fylgjast með skemmtilegum og spennandi íshokkíleikjum.

Myndin sem fylgir með þessari frétt, tekin af Ómari Þóri Edvardssyni, er úr leik Bjarnarins og SR síðasta þriðjudag.