Dags: 23.10.2008 00:24

Núna um næstu helgi verður mikið um að vera í Skautahöllinni í Laugardal. Heilir tveir leikir verða í Meistaraflokki og einn í þriðjaflokki svo og æfingaleikir í 7-6-5 og 4 flokki. Þannig að það verður stanslaust hokkífjör nær allann daginn í Skautahöllinni. Meirstaraflokkur SR sýndi það í síðasta leik, við Björninn, að þeir ætla sér greinilega stóra hluti í Íslandsmeistaramótinu í vetur. Þó að um miðbik leiksins virtist leikurinn að snúast uppúr höndunum á
þeim, kom allt fyrir ekki og SR-ingar fóru úr Egilshöll með sigur.
Fyrir tölu þyrsta þá er hægt að sjá umfjöllun og tölfræði á vefnum ihi.is og einnig er hægt að sjá gang leiksins hér.
Þriðji flokkur hefur spilað 3 leiki í vetur, unnið einn og tapað tveimur, þannig að það verður gaman að sjá hvernig þessi lið eigast við í leik á laugardagskvöldið. Sá leikur verður beint á eftir meistaraflokksleiknum og ætti því að hefjast um kl.21:00.
Skiptimarkaður á laugardaginn frá kl.09:00 til 11:00
Skiptimarkaðir eru skemmtilegt fyrirbæri þar sem fólk kemur saman og gerir reifarakaup á hokkíbúnaði, sérstaklega fyrir þá sem eru að byrja í íshokkí. Einnig er gott að koma með hokkíbúnað sem er orðin of lítill, eða í sumum tilfellum of stór, og skipta honum út fyrir það sem passar eða vantar.
Þannig að það er ekki spurning um að skella sér í Skautahöllina í Laugardal einhvern tíman um helgina... það er ekki ólíklegt að það sé hokkí leikur í gangi.
Meðfylgjandi mynd tók Ómar Þór Edvardsson á leik SR og Bjarnarins síðasta þriðjudag. Hægt er að sjá fleiri myndir úr leiknum hér