Fréttir

Total items: 1194

MFL: SR sigrar í Egilshöll !

Dags: 21.10.2008 23:30


Í kvöld áttust við Skautafélag Reykjavíkur og Björninn í Egilshöllinni.  Skemmst er frá því að segja að SR-ingar komu töluvert einbeittari til leiks en í síðustu viðureign þessara liða þar sem Björninn fór með sigur af hólmi 9 - 3.  SR-ingar voru ákveðnari, hugraðri og einbeittari aðilinn í fyrstu lotunni.  Í annari lotu virtist þetta eitthvað færast ró yfir SR-ingar og Bjarnarmenn gengu á lagið og náðu eitthvað að minnka muninn.  Í þriðju lotu náðu SR-ingar að ná fyrri takti þrátt fyrir eitthvað af brottvísunum og náðu síðan að vinna leikinn sannfærandi 5 - 8.

Meira um leikinn síðar.