Dags: 21.10.2008 09:11
Það vantar alveg SÁRLEGA fleira fólk sem kann á "klukkuna og stigatöflu" á leikjum hjá 4. - 3. - 2. - og MFL.
Næstu helgi verður STÓR helgi hjá okkur í Skautahöllinni, bæði MFL. og 3. fl. taka á móti Skautafélagi Akureyrar (sjá viðburðaskrá hér á vefnum).
Aðeins 2 SR-ingar eru færir á klukkuna í dag sem eru ekki nægilegt margir ... svo það verður haldið "klukkunámskeið" fyrir alla áhugasama næstkomandi miðvikudagskvöld kl. 19:00 í boxinu niður í Skautaöllinni í Laugardal.
Við biðjum sem flesta að líta á þetta jákvæðum augum og skrá sig á námskeiðið. Við biðlum sérstaklega til foreldra í 3. og 4. fl.
Það er mjög mikilvægt að geta sýnt stigin í þeirra leikjum - hvort sem það er æfingaleikur eða deildarleikir. Sökum mjög mikils skorts á "klukkufólki" hefur þetta ekki alltaf verið gerlegt.
Nú er lag á að snúa þessu máli í sókn. KOMA SVOO.... og skrá sig á námskeiðið og LÆRA Á KLUKKU OG STIGATÖFLU.
Jafnframt auglýsum við eftir fólki til að vinna á MFL leikjunum okkar við SA nk. föstudags- kl 21:00 og laugardagskvöld MFL. kl. 18:00 og 3Fl. kl. 21:00.
Störf í boði:
Klukka
Skráning/ritari
Boxið - Skráning línur-
Markadómari
Tónlist
Tilkynningar - föstudag (föst,)
Gæsla
Sjoppa
skrá sig á sigruneina@internet.is