Dags: 18.10.2008 22:42
Í kvöld bar 2.flokkur SR-inga sigurorð af SA-mönnum. Leikurinn fór 3 - 7 og verður það að teljast góð úrslit fyrir okkar menn. Með þessum sigri er SR komin efst í deildina með 6 stig. Það verður gaman að fylgjast með þessum flokki í vetur þar sem þarna eru margir frískir leikmenn sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða. Þeir sem skoruðu mörkin fyrir SR voru Egil Þormóðsson (3 mörk), Styrmir Friðriksson, Björn Sigurðsson, Tómas Ómarsson, Pétur Maack allir með 1 mark hvor. Meira síðar.