Dags: 16.10.2008 00:04
Í kvöld mun ÍHÍ standa fyrir línudómaranámskeiði fyrir áhugasama í Egilshöllinni og hefst það kl.21:30. Farið verður í stutt línudómaranámskeið bæði bóklegt og verklegt á ís. Eftir námskeiðið verður tekið stutt og laggott próf þar sem menn (og konur) geta reynt á kunnáttu sína sem línudómarar.
Þeir sem eru áhugasamir geta skráð sig í netfangið ihi@ihi.is með nafni og símanúmeri.
Klukkunámskeiðið verður haldið þriðjudagskvöldið 21.október kl.19:15 í Skautahöllinni í Laugardal. Kennt verður á klukkuna og hvernig á að bera sig að við tímavörslu í leikjum. Þetta er henntugt kunnátta þar sem alltaf vantar fólk við þetta starf í leikjum.