Dags: 14.10.2008 00:40

Þrátt fyrir að gengi SR í síðasta leik hafi verið á svipaða leið og íslenskt fjármálalíf þá er ekki setið heima með hendur í skauti. Nú hefur Rikki Tatt blásið í herlúður og núna er farið að sigla áfram af fullum krafti aftur. Einsog þessar myndir bera með sér þá er prýðisgóð lyftingaraðstaða niður í Skautahöll þar sem menn rífa í járn fyrir og eftir æfingar. Það má með sanni segja að menn eru farnir að pumpast upp og verða massaðir. Meira að segja eru þeir allra yngstu farnir að rífa í næstum jafnmiklar þyngdir og stóru tröllinn í liðinu. Þó að lyftingarherbergið sé lítið og mennirnir margir er roknar stemmning þegar farið er að lyfta fyrir æfingar og menn æpa á hvorn annan og hvetja til að taka duglega því... og ekkert múður. Næstu heimaleikir SR verða í Skautahöllinni í Laugardal þann 24 og 25 október og það er um að gera að undirbúa sig fyrir gestkomandi Akureyringa.