Dags: 09.10.2008 09:40
Ákveðið hefur verið að leyfa leik með pökk á almenningstíma á þriðjudögum og fimmtudögum í október milli kl. 14 og 15 á 1/3 hluta skautasvellsins (sérmerkt).
Þeir sem æfa hokkí hjá SR geta fengið keypt 30 skipta kort fyrir 6000kr (þ.e. 200kr skiptið) og gildir kortið í eitt ár.
Ef að þetta gengur vel og allir fara eftir settum reglum getur verið að við fáum fleiri frjálsa hokkítíma.
Biðjum við ALLA að virða eftirfarandi reglur:
Allir skulu NOTA HOKKÍHJÁLM MEÐ GRIND og HÁLSHLÍF.
Allir eiga að vera með HOKKÍ HANSKA.
Bannað er að vera með pökk NEMA á hinu afmarkaða svæði.
ALLIR sýni fyllstu varúð svo ekki verði nein slys.
GÓÐA SKEMMTUN!!