Dags: 08.10.2008 09:18
Í gærkvöld fóru SR-ingar í Egilshöll og vonir stóðu til að sækja þar sigur, en allt kom fyrir ekki. SR-ingar áttu fá svör við frískum Bjarnarmönnum sem virtust leika við hvern sinn fingur og skoruðu nær að vild. Heimamenn byrjðu leikinn af fullum krafti og náðu að skora strax þegar rétt um 5 mínútur voru liðnar af leiknum. Egill Þormóðsson náði að jafna fyrir SR-ingar stuttu síðar. Trausti Bergmann náði síðan að auka enn á forrystuna fyrir Bjarnarmenn áður en fyrsti leikhluti var liðinn. Hjá SR-ingum virtist ekkert ganga upp og refsivandræði voru farin að gera vart við sig og náðu þeir sér í 10 mínútur í refsingar á þeim 20 mínútum sem lotan stóð.
Ekki voru liðnar nema 20 sekúndur af öðrum leikhluta þegar Bjarnarmenn náðu enn að auka forystuna. Staðan orðin 3 - 1, Birninum í vil og útlitið ekki bjart fyrir SR-inga. Þegar 6 mínútur voru liðnar náðu Bjarnarmenn enn að auka á forystuna, þá manni færri, og nú virtist Björninn vera taka öll völd á ísnum. Arnþór Bjarnason náði að klóra í bakkann fyrir SR-inga. Það var skammgóður vermir þar sem Bjarnarmenn náðu enn að auka á forskotið með marki frá Kolbeini Sveinbjarnarsyni. Pétur Maack náði að minnka muninn fyrir SR. Bjarnarmenn náðu síðan enn að auka á forskotið með marki frá Gunnari Guðmundssyni. Staðan var ekki beysin fyrir SR-inga þega var farið til búnigsklefa, 6 - 3 heimamönnum í vil.
SR-ingar reyndu hvað þeir gátu að spila sinn leik en allt kom fyrir ekki. Refsivandræði gerðu verulega vart við sig og á tímabili hefðu átt að vera 11 SR-ingar í refsiboxinu. Svo jafnmargir 2 + 10 dómar í einum leikhluta hafa eflaust aldrei litið dagsins ljós í íslensku íshokkíi. SR-ingar reyndu hvað þeir gátu að verjast einsog kostur var, þar sem rjóminn af varnarmönnunum voru í refsiboxinu, en all kom fyrir ekki og Bjarnarmenn gengu á lagið og skoruðu alls 3 mörk án þess að SR-ingar næðu að svara fyrir sig.
Leikur þessi var einn sá lengsti í manna minnum eða heilar 3 klst og SR-ingar geta ekki annað gert en að setjast aftur að teikniborðinu og rissa upp nýjar æfingar, því að svo sannarlega var þetta ekki sama lið og lék síðustu tvo leiki í þessu Íslandsmóti.
HP.