Dags: 06.10.2008 10:43

Um nýliðna helgi komu Norðanmenn til byggða og sóttu tvo sigra í hendur Bjarnarmanna. Það verður að segjast að Akureyringar voru heppnir að vinna fyrri leikinn (3-4) þar sem Bjarnarmenn komu þeim í opna skjöldu með snaggaralegu spili og áræðni. Það sló heldur betur Akureyringa útaf laginu þegar þeir uppgötvuðu það að þeir voru orðnir 2-0 undir snemma í fyrsta leikhluta seinni leiksins og hrukku þá í gang og frá miðbik annarar lotu var aldrei nein vafi á því hvernig leikurinn mundi fara. Akureyringar fóru með stórsigur af hólmi í seinni leiknum (4-11). Bjarnarmenn urðu fyrir blóðtöku í fyrri leiknum þegar aðalmarkmaður þeirra lennti í samstuði við Stefán nokkurn Hrafnsson og fékk við það heilahristing og var því ekki með í seinni leiknum. Hvort að það hafi ráðið úrslitum í seinni leiknum verður ekki tíundað hér.
Á morgun, þriðjudag, munu SR-ingar fara uppí Egilshöll og spila við Björninn. Bjarnarmenn eiga harm að hefna eftir helgina og þeir ætla eflaust að leggja SR-inga í góðum leik en Richard Tahtinen og leikmenn hans eru eflaust á öðru máli. Leikurinn byrjar kl.19:30 í Egilshöll