Dags: 29.09.2008 08:40
Þrátt fyrir að breyta þurfti mótaskipulagi í bikarmóti 4 og 5 flokks náðu flestir ef ekki allir að skemmta sér vel. Akureyringar eiga þakkir skilið fyrir að halda þetta fyrsta bikarmót 4 og 5 flokks í vetur. Þreytti en ánægðir ferðalangar komu í gærkvöld um kl.20:00 til Reykjavíkur.
Það voru unnir fleiri stórsigrar á þessari helgi en í 4 og 5 flokki þar sem bæði Meistaraflokkur og 3.flokkur báru sigur af hólmi í sínum viðureignum. Eitthvað hafa upplýsingarnar skolast til hjá þeim sem þetta skrifar varðandi Meistaraflokksleikinn en loturnar fóru (0 - 1), (2 - 3), (1 - 1) en endaniðurstaðan er sú sama, SR-ingar unnu leikinn 5 - 3.
Þriðji flokkur gerði einnig góðan sigur á Akureyringum, 8 - 3, en til samanburðar þá áttust þessi lið við nýverið og þá endaði leikurinn með stórsigri SA 9 - 4. Þannig að það lýtur út fyrir spennandi keppni bæði í Meistraflokki og í 3.flokki.
Hægt er að sjá nánari umfjöllun um leikinn á vef ÍHÍ.
Hægt er að sjá nýjustu greinina frá Richard hérna.