Fréttir

Total items: 1194

Leik SR og SA lokið í Meistaraflokki með sigri SR, 5 - 3

Dags: 27.09.2008 19:11


Samkvæmt heimildum hefur meistaraflokkur SR gert góða ferð norður og sótt sigur í greipar norðanmanna.  Þrátt fyrir liðsaukann hjá Akureyringum náðu þeir ekki að kreista fram sigur gegn fyrnarsterku liði SR sem er skipað ungum og hressum leikmönnum og stýrt af hinum efnilega þjálfara Richard Tahtinen. 
Arnþór Bjarnason byrjaði að skora fyrir SR í fyrstu lotu, hann átti einnig heiðurinn af öðru markinu.  Akureyringar náðu að klóra örlítið í bakkann undir lokin á fyrstu lotu.  Staðan því 2 - 1 fyrir SR þegar liðin fóru til búningsklefa.  Í annari lotu voru það Andri Guðlaugsson og Óskar Grönholm sem skoruðu fyrir SR og juku en á forystuna.  Akureyringar voru aldrei langt undan og náðu að skora annað mark áður en annari lotu lauk.  Þegar komið var í þriðju og síðustu lotuna voru SR-ingar komnir í nokkuð þægilega stöðu og nánast formsatriði að klára leikinn.   Akureyringar náðu að skora snemma í 3 leikhluta og settu mikla pressu á okkar menn.  Þegar lítið lifði leiks, u.þ.b 15 sekúndur, var uppkast í varnarsvæði SR og Akureyringar tóku markmann sinn af leikvelli til að bæta við auka manni í sóknina.  Beint út uppkasti náðu Akureyringar valdi á pekkinum og skutu beint á mark SR-ingar sem þar stóð fast fyrir Ævar Þór Björnsson og varði, pökkurinn rataði til Egils Þormóðssonar sem lét ekki opið mark renna sér úr greipum og skoraði fimmta og síðasta mark SR-inga.  Annar sigurinn í þessari viku í höfn og SR er efst í deildinni sem er rétt nýhafin.

"Thumbs up" leikmenn leiksins
Ævar Þór Björnsson
Átti stórleik í markinu og hélt liðinu inni allan leikinn.
 Arnþór Bjarnason
Sívinnandi leikmaður sem sló aldrei af.
 Óskar Grönholm
Skorar mark á góðum tíma í leiknum, í sínum öðrum meistaraflokksleik.