Fréttir

Total items: 1194

Meistaraflokkur og 3.flokkur spila í kvöld á Akureyri!

Dags: 27.09.2008 11:58


Það er óhætt að segja að þessi helgi sé stór hokkíhelgi þar sem öll lið í 4 og 5 flokki eru norðan heiða. Þetta mót er hluti af bikarmóta-röð sem hver félag heldur á ári hverju.  Þessi mót hafa verið ákaflega skemmtileg, bæði fyrir þá sem taka þátt og þá sem koma að mótinu með einum eða öðrum hætti.  Ef þú ert staddur norður á Akureyri þá er um að gera að renna niður í skautahöllina og kanna aðstæður.

Einsog undanfarin ár hefur einum meistaraflokksleik verið plantað inn í svona mót til þess að þeir ungu geti fylgst með þeim eldri í leik.  Hefur þetta yfirleitt markað hápunktinn á mótinu fyrir yngri kynslóðina.
SR kemur fullt sjálfstrausts eftir stórsigur á Birninum í liðinni viku og engar líkur eru á að það sjálfstraust þvælist fyrir þeim í leik þeirra gegn SA... eða við skulum vona það.  SA hafa spila einn leik í Íslandsmeistaramótinu, þá við Björninn, sem þeir unnu með naumindum 4 - 2.  En SA hefur verið að styrkja sitt lið jafnt og þétt með erlendum og innlendum leikmönnum.  Hin fjölhæfi leikmaður Michael Boudreau, sem er jafn liðtækur í vörn og í marki, hefur gengið formlega til liðs við SA eftir að hafa verið viðloðandi liðið meira eða minna allt síðasta tímabil og gott betur.  Ingvar Þór Jónsson sem hefur alið manninn í Danmörku við nám undanfarin ár hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla félag SA eftir miklar vangaveltur og valkvíðahríðir undanfarna mánuði.   Aron Leví Stefánsson, markmaðurinn knái, hefur flutt sig aftur í sitt gamla félag SR eftir einn vetur hjá Birninum, þar sem hann var einn af 5 markmönnum Meistaraflokks Bjarnarins.  Einnig hafa þeir Árni Valdi Bernhöft og Helgi Páll Þórisson snúið til baka í SR eftir veturdvöl í Hrísey þar sem Narfi er skráður til húsa.

Meistaraflokksleikurinn byrjar kl.17:00 í Skautahölli Akureyrar þannig að það er um að gera að skella sér á leikinn.

3.flokkur spila síðan kl.22:30 og allar líkur eru að það verður ekki minna barist heldur en í Meistaraflokksleiknum.