Fréttir

Total items: 1194

Fyrsti sigur í höfn !

Dags: 25.09.2008 00:26


479298.jpg

Í gærkvöld mættust SR og Björninn í fyrstu viðureign sinn í vetur.  Bjarnarmenn byrjðu leikinn vel með ákveðnum sóknartilburðum.  SR-ingar virtust vera heldur seinir í gang en það hefur eflaust verið úthugsað spil, að fara ekki að neinu óðslega.  Það kom brátt í ljós að í þessum leik voru bæði lið ekki á því að gefa neitt ókeypis og var harkan á köflum meiri en gengur og gerist í íshokkí á Íslandi. 
SR-ingar voru fyrri til að skora og var það Daniel Kolar sem opnaði markareikninginn fyrir SR-inga.  Hann átti einnig heiðurinn að öðru marki SR. Tvö mörk fylgdu í kjölfarið frá Agli Þormóðssyni sem var stöðugt ógnandi og nánast ótrúlegt hvernig hann náði vöðla sér í gegn vörn Bjarnarmanna ýtrekað í leiknum.  Leyniskyttan og fyrirliðinn Steinar Páll Veigarsson átti eitt af glæsilegri mörkum leiksins er hann tók "one-timer" eftir stoðsendingu frá Daniel Kolar í Powerplay.  Guðmundur Björgvinsson átti einnig gott mark með slabbara frá bláu-línunni beint í markið.
Bjarnarmenn áttu fá svör við ákveðnum og einbeittum sóknarleik SR-ingar. Ef ekki hefði verið fyrir glæsilega markvörslu hjá hinum unga Dennis Headström þá hefðu úrslitin verið önnur og meiri SR í vil.  Birgir Hansen var að vanda ógnandi í sínum leik svo og Sergei Zak á köflum.

Það er ljóst að útlitið er gott fyrir SR-ingar í komandi Íslandsmóti og það er ljóst að baráttan verður hörð í vetur.

Daniel Kolar 2/3
Egill Þormóðsson 2/2
Steinar Páll Veigarsson 2/0
Guðmundur Björgvinsson 1/0
Tómas Tjörvi Ómarsson 0/1
Arnþór Bjarnason 0/1
 
Mörk/stoðsendingar Björninn:
 
Birgir Hansen 3/0
Daði Heimisson 0/1
Einar Sveinn Guðnason 0/1
Niklas Aalto-Setala 0/1.


"Thumbs up" leikmenn leiksins
Daniel Kolar (SR)
3 mörk og 2 stoðsendingar segja sitt.
  Ævar Þór Björnsson (SR)
Stöðugur í markinu, aldrei nein hætta á ferðum.
  Birgir Hansen (Björninn)
Ef ekki hefði verið fyrir hans sóknartilburði þá hefðu Bjarnarmenn verið í vörn nær allan leikinn.

Myndin ef fengin að láni af mbl.is

Orðsending frá Richard, aðalþjálfara.  Pre-season and first game of the season og hans umfjöllun um leikinn .